Í tilefni af Degi náms- og starfsráðgjafar þann 20. október nk. óskar stjórn félagsins eftir tilnefningum félagsfólks til viðurkenningar fyrir störf í þágu náms- og starfsráðgjafar.
Frestur til að senda inn tilnefningu ásamt stuttri greinargerð um þann sem er tilnefndur er 27. september og skal senda á netfangið fnsstjorn@gmail.com.
Tilgangur viðurkenningarinnar er að vekja athygli á fagmennsku og nýsköpun í starfi náms- og starfsráðgjafa og framlagi einstaka félagsfólks til fags og stéttar. Félagið hefur veitt viðurkenningu fyrir störf í þágu náms- og starfsráðgjafar frá árinu 2006.
Hægt er að tilnefna bæði einstaklinga eða sérstök verkefni og þá sem að þeim standa.
Viðurkenningin verður veitt á haustráðstefnu FNS 12. -13. október.
Til upplýsingar og fróðleiks eru nöfn þeirra félagsmanna sem hafa hlotið viðurkenninguna fram til þessa.
2022 Hrönn Baldursdóttir, Líney Árnadóttir, og Virk starfsendurhæfingarsjóður.
2021 Arnar Þorsteinsson og Nanna Imsland
2020 Allir félagsmenn FNS
2019 Sif Einarsdóttir
2018 María Dóra Björnsdóttir
2016 Guðbjörg Vilhjálmsdóttir – heiðursviðurkenning
2015 Fjóla María Lárusdóttir
2014 Toby Herman
2013 Davíð S. Óskarsson og Guðrún Kristinsdóttir
2012 Ólafur Haraldsson
2011 Ingveldur Sveinbjörnsdóttir
2010 Jónína Kárdal
2009 Ágústa Ingþórsdóttir
2008 Hrafnhildur Tómasdóttir
2007 Sigrún Ágústsdóttir og Björg Birgisdóttir
2006 Guðbjörg Vilhjálmsdóttir