Hér er að finna ýmiss konar hagnýtt efni sem gagnast getur á öllum skólastigum. Ábendingar varðandi efni eru vel þegnar og sendast á fns@fns.is.
Hér má finna kynningarglærur um framhaldsskólana og lista yfir framhaldsskóla sem bjóða upp á framhaldsnám á Íslandi
Listi yfir námsbrautir framhaldsskólanna var unninn af Ásthildi G. Guðlaugsdóttur náms- og starfsráðgjafa vorið 2017. Verkefnið var styrkt af Erasmus+ og samstarfsáætlun ESB.
Tenglar á áhugaverðar síður sem nýta má með ráðþegum
Sjálfsmynd og Sterkari út í lífið eru vefsíður sem hægt er að nota þegar vinna á með sjálfsmynd einstaklingsins og fleira.
Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar
Námsefni
Ég og framtíðin er rafrænt efni þar sem finna má texta og verkefni sem er ætlað að aðstoða við námsval sem nemandi stendur frammi fyrir að loknum 10. bekk. Nemendur læra ýmislegt um sig sjálf samhliða því að öðlast meiri þekkingu á þeim fjölmörgu leiðum sem standa til boða. Í náms- og starfsfræðslu kannar þú eigin áhuga, styrkleika og færni í tengslum við þann náms- og starfsferil sem framundan er. Verkefnabókin er hugsuð fyrir nemendur í 8. – 10. bekk.
Stefnan sett og Margt er um að velja er efni sem hægt er að nýta í náms- og starfsfræðslu með ráðþegum.
Stopp ofbeldi er vefur sem inniheldur mikið af gagnlegu námsefni sem og upplýsingum um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og hægt er að nota við forvarnarfræðslu.
Ég veit er opinn námsefnisvefur fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og um ofbeldi, misnotkun, einelti og réttindi barna.
Gagnabanki Menntaskólans á Egilsstöðum var unnin af Nönnu H. Imsland og þar er fjölbreytt gagnlegt efni fyrir náms- og starfsfræðslu.
Greinargerð með almennri starfslýsingu fyrir náms- og starfsráðgjafa
Hér við hliðina er að finna uppfærða, almenna starfslýsingu fyrir náms- og starfsráðgjafa, sem fyrst var birt á ytri vef félagsins í janúar 2026. Lýsingin var unnin í kjölfar ákvörðunar á Aðalfundi FNS árið 2023 um að hefja slíkt verkefni. Stjórn FNS 2023–2024 mótaði grunn og ramma verkefnisins og í framhaldinu tók fagráð FNS við. Stjórn FNS 2025-2026 tók svo við afurð fagráðsins og sameinaði í loka útgáfu.
Þrátt fyrir sameiginlegan grunn — markmið, sérmenntun og starfsheiti — kom í ljós að ýmis atriði aðgreina störf náms- og starfsráðgjafa eftir því hvort þeir starfa innan skólakerfisins eða utan þess. Félagsfólk getur nálgast sérstakan viðauka um þessi atriði hér fyrir neðan.
Lögð var mikil áhersla á víðtæka samvinnu og var send út umfangsmikil könnun til alls félagsfólks. Svörum var safnað saman og greint eftir hópum ráðþega. Fagráð FNS sá um úrvinnslu svaranna, meðal annars með fjölmennum fjarfundum þar sem margir komu að verkinu, samræmdu orðalag og unnu sameiginlega úr þeim gögnum sem lágu fyrir. Niðurstaðan er sett fram hér að ofan og birt af stjórn FNS 2025–2026, 15. janúar 2026.
Meginmarkmið almennrar starfslýsingar fyrir náms- og starfsráðgjafa er að auðvelda fagfólki að móta skýran ramma utan um störf sín. Lögð er áhersla á að starfslýsingin nýtist sem fyrirmynd sem náms- og starfsráðgjafar geta stuðst við, við gerð eigin starfslýsingar, með þeim aðlögunum sem nauðsynlegar eru fyrir hvern og einn ráðgjafa og hvert starfssvið.
Náms- og starfsráðgjafar starfa meðal annars í skólum, fyrirtækjum og á atvinnumiðlunum. Starf þeirra getur tekið á sig ólíkar myndir eftir starfsvettvangi en byggir þó á sameiginlegu markmiði um að stuðla að velferð einstaklinga og hafa hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Eins og starfsheitið ber með sér eru náms- og starfsráðgjafar sérfræðingar í ráðgjöf sem tengist námi og störfum, hvort sem unnið er með einstaklinga sem eru í námi eða starfi, eða þeim sem standa frammi fyrir vali eða breytingum.
Almenn starfslýsing náms- og starfsráðgjafa
Náms- og starfsráðgjafi styður einstaklinga við að taka upplýstar ákvarðanir um nám og framtíðarstörf. Hann hjálpar þeim að efla sjálfsþekkingu, takast á við áskoranir í námi og þróa persónulega og félagslega færni. Starfið felur í sér einstaklings- og hópráðgjöf, fræðslu um námstækifæri og vinnumarkaðinn, auk stuðnings við persónuleg málefni. Ráðgjafinn vinnur í nánu samstarfi við ráðþega og aðra sérfræðinga, tekur þátt í stefnumótun og stuðlar að faglegri þróun sinni. Starfið byggir á faglegum viðmiðum, siðareglum og virku samstarfi.
🧠 Ráðgjöf og stuðningur
- Veita einstaklings- og hópráðgjöf um nám, starfsval og persónuleg mál.
- Styður ráðþega við að þróa með sér hæfni til að stýra eigin náms- og starfsferli.
- Aðstoða einstaklinga við að skilja eigin styrkleika, áhugasvið og markmið.
- Veita ráðgjöf um námsframvindu, vinnubrögð og sjálfsþekkingu.
- Ráðgjöf vegna persónulegra málefna og samskiptavanda.
📚 Upplýsingagjöf og fræðsla
- Sérfræðingur í upplýsingagjöf.
- Leiðbeiningar um upplýsingaleit og nýtingu upplýsingaveita og rafrænna lausna.
- Upplýsa um úrræði innan menntakerfisins og tengja einstaklinga við viðeigandi þjónustu.
- Skipuleggja og halda utan um náms- og starfsfræðslu.
- Undirbúa einstaklinga fyrir val á námi og skóla.
- Fræða um námstækni, sjálfsþekkingu og markmiðasetningu.
- Kynningar á náms- og starfs tækifærum og námsmöguleikum á mismunandi skólastigum.
🛡️ Málsvarahlutverk og hagsmunagæsla
- Vera málsvari ráðþega sinna.
- Veita ráðgjöf um réttindi og skyldur.
- Aðkoma að teymisvinnu og sérúrræðum.
- Vísa einstaklingum áfram til viðeigandi aðila þegar þörf krefur.
🗂️ Fagleg stjórnun og þróun
- Starfa eftir siðareglum og faglegum viðmiðum stéttarinnar.
- Þátttaka í stefnumótun og áætlanagerð.
- Markviss endurmenntun og fagleg handleiðsla.
🔹 Hæfnikröfur
- Starfsleyfi Náms- og starfsráðgjafa.
- Góð samskiptahæfni og menningarnæmi.
- Þekking á íslensku menntakerfi og vinnumarkaði.
- Færni í ráðgjöf og upplýsingagjöf.
- Sjálfstæði í starfi og hæfni til teymisvinnu.
Viðauki við starfslýsingu: Grunnskóli
Markmið:
Að styðja nemendur í félagslegri og námslegri þróun og undirbúa einstaklinga fyrir framhaldsskólanám.
Helstu verkefni:
- Ráðgjöf um námsvenjur, félagsfærni og vellíðan.
- Aðstoð við val á námsgreinum og kynningu á framhaldsskólanámi.
- Skipuleggja fræðslu og forvarnir gegn einelti og brotthvarfi.
- Samstarf við kennara og foreldra.
Viðauki við starfslýsingu:
Framhaldsskóli
Markmið:
Að styðja nemendur í námsvali, starfsþróun og persónulegri vellíðan og draga úr brotthvarfi úr námi.
Helstu verkefni:
- Ráðgjöf um námsval, námsaðferðir og starfsval.
- Aðstoð við gerð ferilskrár og undirbúning atvinnuviðtala.
- Fræðsla um geðrækt og forvarnir.
- Samstarf við kennara og atvinnulíf um starfsnám.
Viðauki við starfslýsingu:
Háskóli
Markmið:
Að styðja nemendur í námsframvindu, starfsþróun og tengingu við vinnumarkað.
Helstu verkefni:
- Ráðgjöf um námsval, tímastjórnun og starfsþróun.
- Skipuleggja námskeið um atvinnuleit og hæfniþróun.
- Samstarf við deildir og fyrirtæki um starfsnám og ráðstefnur.
- Stuðningur við nemendur með sérþarfir.
Viðauki við starfslýsingu:
Framhaldsfræðsla og atvinnulíf
Markmið:
Að styðja starfsmenn í starfsþróun, hæfni uppbyggingu og vellíðan á vinnustað.
Helstu verkefni:
- Ráðgjöf um starfsþróun og endurmenntun.
- Skipuleggja þjálfunarverkefni og fræðslu.
- Forvarnir gegn kulnun og stuðningur við vellíðan.
- Samstarf við menntastofnanir og ráðningarþjónustu.