Kæra félagsfólk,
Þá er komið að síðustu fræðslunni þennan veturinn sem verður
2. maí nk. kl. 14:00 – 15:30 á Zoom.
Að þessu sinni leituðum við til ykkar, kæra félagsfólk, og höfum fengið til liðs við okkur frábæra náms- og starfsráðgjafa sem ætla að segja okkur frá hópráðgjöf sem þær eru að fást við í sínu starfi.
- Helga Rós Einarsdóttir er náms- og starfsráðgjafi hjá Háskólanum á Bifröst. Hún segir frá hópráðgjöf sem hún er með fyrir nemendur sem eru að skrifa lokaritgerð bæði í grunn- og framhaldsnámi.
- Hrönn Grímsdóttir er náms- og starfsráðgjafi hjá Austurbrú. Hún ætlar að segja okkur frá tveimur námskeiðum sem hún hefur verið með, annarsvegar um streitu- og kvíðastjórnun og hinsvegar um starfsleit – að efla færni til atvinnuþáttöku.
- Klára Guðbrandsdóttir er náms- og starfsráðgjafi í fangelsunum. Hún ætlar að segja okkur frá námstækninámskeiði sem hún hefur boðið uppá.
- Kristín Hrefna Leifsdóttir er náms- og starfsráðgjafi í Sæmundarskóla. Hún ætlar að segja okkur frá hópráðgjöf í félagsfærni.
Hlekkur á Zoom hefur verið sendur í félagspósti.
Við vonum innilega að þið komist sem flest þó svo fyrirvarinn sé stuttur.
Kær kveðja,
Fræðslunefnd FNS