Haustið kallar með nýjum tækifærum

Sumarið er senn á enda og nú tekur við spennandi haust með nýjum verkefnum, tækifærum og áskorunum. Haustið er oft góður tími til að móta okkur stefnu, styrkja faglegt starf og finna nýjar leiðir til að styðja fólk hvar sem það er statt á sínum náms- og starfsferli.

Það gleður okkur að segja frá því að Náms- og starfsráðgjöf er nú hluti af annarri aðgerðaáætlun Menntastefnu 2030 (2025–2027). Þetta er mikilvægt skref þar sem fagið okkar fær aukið vægi í opinberri stefnumótun. Þar er lögð áhersla á að náms- og starfsráðgjöf sé lykillinn að jöfnuði, vellíðan og tækifærum fyrir alla – óháð aldri, bakgrunni eða staðsetningu.

Þessi áætlun veitir okkur bæði ramma og hvata til að þróa starf okkar enn frekar og tryggja að náms- og starfsráðgjöf sé aðgengileg, fagleg og metnaðarfull þjónusta fyrir alla sem þurfa á henni að halda.

Sjá aðgerðaáætlunina í heild hér:
Menntastefna 2030 – Önnur aðgerðaáætlun 2025–2027 (PDF)

Við hvetjum félagsfólk til að kynna sér skjalið, ræða innihaldið og nýta það sem innblástur í starfi.