Þetta er spurning sem Jónína Kárdal, náms- og starfsráðgjafi við Háskóla Íslands veltir fyrir sér í grein sem hún skrifar í afmælisriti Kennslumiðstöðvar HÍ.
Jónína fjallar um þróun og hönnun námskeiðs í starfshæfni og starfsferilststjórnun fyrir nemendur í stjórnmálafræðideild HÍ.
Þetta námskeið byggir á kenningum um starfsþróun og styðst við LOUIS hæfnirammann innan Aurora samstarfs sem Háskóli Íslands tekur þátt í.
Jónína ræðir meðal annars um:
• hvernig markviss námskeiðshönnun getur eflt starfshæfni, sjálfsþekkingu og hæfni stúdenta til að stýra eigin náms- og starfsferli,
• hvernig Aurora‑samstarfið og HÍ26 hafa mótað kennsluhætti og áherslur námskeiðsins
• og hvaða lærdóm má draga af tveggja ára þróun, mati og samstarfi við nemendur.
Niðurstaðan er sú að ,,með markvissri notkun á hæfniramma LOUIS, samstarfi við atvinnulíf og nemendamiðaðri nálgun er hægt að undirbúa nemendur fyrir ófyrirsjáanlega framtíð og styrkja stöðu háskóla sem lykilþátttakenda í samfélagsþróun.“
Hægt er að lesa tímaritið og finna greinina á https://timarit.hi.is/tk/issue/view/tk2025/tk2025
