Fimm félagar FNS hlutu styrk til þátttöku í Academia, vorið 2026

Í lok síðasta árs bauðst félagsfólki FNS að taka þátt í Academium á ýmsum stöðum í Evrópu. Fimm þátttakendur sóttu um og fengu styrk til þátttöku í verkefninu. Academia er vettvangur fyrir náms- og starfsráðgjafa til að kynnast nýjum sjónarmiðum, deila reynslu og fá innsýn í starfshætti kollega víðs vegar að úr Evrópu

Þátttakan er möguleg með stuðningi KA1-hreyfanleika styrks frá Erasmus+ og Euroguidance á Íslandi, sem hefur skapað félagsfólki tækifæri til að sækja alþjóðleg náms- og tengslamyndunarverkefni og færa nýjar hugmyndir og reynslu inn í íslenskt fagstarf. FNS hefur jafnframt hlotið styrk til áframhaldandi þátttöku í Academias-samstarfsverkefninu árið 2027 og verður því aftur mögulegt fyrir félagsfólk að sækja um þátttöku á næsta ári. Nánari upplýsingar um umsóknarferli og fyrirkomulag verða kynntar á haustráðstefnunni okkar sem haldin verður á Hótel Örk, dagana 15. og 16. október næstkomandi.

Undir síðunni ,,Hagnýt efni“ er komin samansafn af ferðasögum frá félagsfólki FNS sem tók þátt í verkefninu árið 2026 þar sem þau segja frá upplifun sinni af Academias á ólíkum stöðum í Evrópu. Frásagnirnar gefa innsýn í það sem þau lærðu, tengslin sem mynduðust og þau áhrif sem þátttakan hafði á faglega þróun þeirra.

Ferðasögur þátttakenda má lesa hér