EKKO teymi Fjölbrautaskóla Suðurlands hlaut Hvatningarverðlaun á Degi gegn einelti 2026, sem veitt voru af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Verðlaunin eru viðurkenning fyrir starf teymisins að forvörnum og viðbrögðum við einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi (EKKO).
Í EKKO teymi FSu starfa náms- og starfsráðgjafarnir Agnes Ósk Snorradóttir, Anna Fríða Bjarnadóttir og Bjarney Sif Ægisdóttir ásamt skólafélagsráðgjafanum Höllu Dröfn Jónsdóttir. Myndina tók Ívar Sæland.
Vinna teymisins hefur meðal annars falist í að þróa og skýra verklag skólans í EKKO-málum, efla fræðslu og forvarnir og gera nemendum auðveldara að leita sér aðstoðar. Áhersla hefur verið lögð á að virkja bæði nemendur og starfsfólk og skapa þannig sameiginlega ábyrgð á góðum samskiptum og öruggu skólasamfélagi.
Einn afrakstur vinnunnar er sérstakur EKKO-bæklingur fyrir nemendur og starfsfólk FSu. Hann var unninn í samvinnu við nemendur og inniheldur meðal annars upplýsingar um forvarnir, stuðning, viðbrögð og hvert hægt er að leita þegar upp koma EKKO-mál. https://heyzine.com/flip-book/e8bcd6944c.htm
Forvarnarstarfið hefur jafnframt þróast áfram, meðal annars í verkefninu Jákvæður nóvember, þar sem lögð er áhersla á jákvæð samskipti, virðingu, ábyrgð og þátttöku alls skólasamfélagsins.
Hvatningarverðlaunin eru dýrmæt viðurkenning á því starfi sem unnið hefur verið í FSu og um leið hvatning til að halda áfram að þróa forvarnir, fræðslu og stuðning með virkri þátttöku nemenda og starfsfólks.