Lög FNS

Lög Félags náms- og starfsráðgjafa

Með breytingum samþykktum á aðalfundi 13. maí 2024

1. grein
Félagið heitir Félag náms- og starfsráðgjafa, skammstafað FNS, og er fagfélag náms- og starfsráðgjafa. Félagssvæði þess er landið allt. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

2. grein

Tilgangur félagsins er:

  1. að efla náms-og starfsráðgjöf, samheldni og tengsl félagsfólks ásamt fag- og stéttarvitund íslenskra náms- og starfsráðgjafa
  2. að gæta hagsmuna náms- og starfsráðgjafa við gerð kjarasamninga í stéttarfélögum þeirra þar sem það á við
  3. að gæta faglegra og félagslegra hagsmuna náms- og starfsráðgjafa gagnvart innlendum og erlendum aðilum
  4. að efla faglegt starf og  stuðla að endurmenntun félagsmanna
  5. að hvetja til rannsókna á sviði náms- og starfsráðgjafar
  6. að efla samstarf við erlend félög náms- og starfsráðgjafa

3. grein

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að:

  1. Vinna starfi náms- og starfsráðgjafa brautargengi í gegnum ráðuneyti sem starfi á sviði náms- og starfsráðgjafar, stéttarfélög náms- og starfsráðgjafa, samtök atvinnulífsins og samstarf við önnur félagasamtök.
  2. Efla umfjöllun um starfsvettvang náms- og starfsráðgjafa með opinberum greinaskrifum, þátttöku í nefndastörfum og öðru faglegu samstarfi þar sem fagmennsku náms- og starfsráðgjafa er þörf.
  3. Endurskoða reglulega siðareglur FNS og viðhalda umræðu um siðferðileg álitamál.
  4. Efna til almennra funda svo og fræðslu- og kynningarfunda um málefni stéttarinnar.
  5. Halda úti miðlum með upplýsingum um FNS, fréttum af starfsemi félagsins og aðgengi að tenglum og öðru því efni sem gagnast við náms- og starfsráðgjöf. Auk þess að efla og styrkja samráð meðal félagsfólks.
  6. Stuðla að endurmenntun með námskeiðum, fræðslufundum eða ráðstefnum fyrir félagsfólk og miðla upplýsingum um gagnleg námskeið og ráðstefnur innan lands sem utan.

4. grein

Félagsfólk í Félagi náms- og starfsráðgjafa:

  1. Fullgilt félagsfólk geta þau ein verið sem hafa lokið námi í náms-og starfsráðgjöf sem viðeigandi ráðuneyti samþykkir og hafa jafnframt löggildingu starfsheitisins frá sama ráðuneyti. Fullgild aðild felur í sér að geta tekið að sér embætti á vegum félagsins ásamt því að eiga atvkæðisrétt á almennum félagsfundum og aðalfundi.
  2. Meistaranemar í náms- og starfsráðgjöf geta orðið aukafélagar og hafa tillögurétt og málfrelsi en hvorki atvkæðisrétt né kjörgengi. Nemaaðildi gildir í tvö starfsár.
  3. Félagar á eftirlaunum geta óskað eftir niðurfellingu félagsgjalda. Við 67 ára aldur fellur félagsgjald niður en félagsaðild er áfram fullgild með öllum skyldum og réttindum sem því fylgja.
  4. Inntökubeiðni í Félag náms- og starfsráðgjafa skal vera skrifleg. Almennir umsækjendur skulu skila upplýsingum um prófgráður, starfsheiti og vinnustað ásamt afriti af leyfisbréfi. Nemar skulu skila staðfestingu á námi í náms- og starfsráðgjöf
  5. Stjórn FNS sér um félagaskrá og inntöku nýs félagsfólks
  6. Stjórn félagsins getur vikið félagsfólki úr félaginu vinni það gegn hagsmunum þess og/eða gerist brotlegt í starfi skv. landslögum. Að virtum andmælarétti félagsaðila til stjórnar varðandi brottvikningu úr félaginu getur viðkomandi borið ákvörðun stjórnar undir almennan félagsfund til að fá ákvörðunina fellda úr gildi eða til að fá henni breytt. Eigi félagsaðili vangoldin félagsgjöld eftir að eindaga lýkur fellur hann út af félagaskrá

5. grein

Almennir félagsfundr skulu boðaðir með minnst viku fyrirvara og teljast þeir ályktunarhæfir. Félagsfundir skulu boðaðir í gegnum póstlista FNS. Stjórn getur boðað til féalgsfundar með minnst tveggja daga fyrirvara þegar um áríðandi málefni er að ræða. Félagsfundir geta ályktað um málefni svo framarlega sem fundur hafi verið boðaður með löglegum hætti og 2/3 fundargesta samþykki ályktun.

6. grein

  1. Félagsgjald félagsfólks skal ákvarðað á aðalfundi án tillits til fundarsóknar.
  2. Gjaldkeri félagsins sér um innheimtu féalgsgjalda í umboði stjórnar.
  3. Félagsaðild gildir fram yfir næsta aðalfund en féalgsgjald er að jafnaði innheimt í upphafi starfsárs.
  4. Reikningsár féalgsins er frá 1. janúar til 31. desember.
  5. Ársreikningur félagsins er yfirfarinn af skoðunarfólki sem kosin eru á aðalfundi ár hvert.

7. grein

Aðalfundur Félags náms- og starfsráðgjafa er haldinn í apríl/maí ár hvert. Hann hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Til hans skal boðað með tveggja vikna fyrirvara hið skemmsta og er hann þá lögmætur. Meirihluti atkvæða á fundinum ræður úrslitum mála.

8. grein

Dagskrá aðalfundar skal vera:

Kosning fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar kynnt og borin upp til samþykktar
Ársreikningur félagsins kynntur og borinn upp til samþykktar
Lagabreytingar
Nefndastörf
Umræður og afgreiðsla mála
Kosning stjórnar, varastjórnar, nefnda, ráða og skoðunarfólks reikninga

Önnur mál.

9. grein

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi. Tillögur til lagabreytinga skal senda stjórn fyrir 16. mars ár hvert og skal stjórnin senda þær til félagsfólks með aðalfundarboði. Til lagabreytinga þarf ¾ atkvæða fundarmanna.

10. grein

  1. Stjórn félagsins skal skipuð sjö fulltrúum félagsfólks og tveimur til vara. Hver fulltrúi er kjörinn til tveggja ára í senn.
  2. Formann skal kjósa sérstaklega.
  3. Stjórn félagsins skiptir með sér verkum.
  4. Skipa skal í hlutverk varafomanns, gjaldkera, ritara, vefstjóra hið minnsta.
  5. Við stjórnarkjör skal tryggt að ekki gangi fleiri en þrír úr stjórn í einu.
  6. Þegar formannsskipti verða er fráfarandi formaður ráðgefandi aðili fyrir stjórn í heilt starfsár.
  7. Ekki er heimilt að sitja lengur í stjórn en 4 ár í senn. Formaður getur setið í því embætti í 4 ár óháð fyrri stjórnarsetu.

11. grein

Stjórn félagsins ræður málefnum þess með þeim takmörkunum, sem lög þessi setja. Hún tekur ákvarðanir um starfsemi félagsins og ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Hún skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns og gjaldkera nægileg til þess. Stjórn félagsins er heimilt að skipa í nefndir, sem starfa í umboði stjórnar.

12. grein

Nefndir, fagráð FNS og fulltrúi í norrænu samstarfi.

Fræðslunefnd skal jafnan starfrækt í FNS. Hún er skipuð fimm fulltrúum félagsfólks og er hver fulltrúi kjörinn til tveggja ára í senn. Starfssvið hennar er að vinna að fræðslu- og endurmenntunarmálum. Hún geriri tillögur um og skipuleggur fræðslu og endurmenntun á vegum FNS í samræmi við lög FNS 2.1 og 2.4 í samráði við stjórn og aðrar nefndir og ráð.

Siðanefnd skal jafnan starfrækt í FNS. Nefndin skal skipuð fimm fulltrúum félagsfólks, þar af einum úr stjórn féalgsins og er hver fulltrúi kjörinn til tveggja ára í senn. Hlutverk hennar er að stýra umræðu um siðareglur og siðferðileg álitamál innan náms- og starfsráðgjafar.

Kjaranefnd skal jafnan starfrækt í FNS. Nefndin skal skipuð fimm fulltrúum og er hver fulltrúi kjörinn til tveggja ára í senn. Hlutverk hennar er að taka saman upplýsingar um kjaramál náms- og starfsráðgjafa og upplýsa stjórn og félagsfólk FNS um hagsmunamál í kjarasamningum. Nefndin er einnig tengiliður, fyrir hönd stjórnar FNS, við þau stéttarfélög sem að félagsfólk FNS eru aðilar að.

Ritnefnd skal jafnan starfrækt í FNS. Ritnefnd er skipuð þremur fulltrúum og er hver fulltrúi kjörinn til tveggja ára í senn. Hlutverk hennar er að fylgja eftir vef- og efnisstefnu FNS hverju sinni sem tekur til allra miðla féalgsins og hafa umsjón með þeim. Vefstóri FNS er tengiliður stjórnar við ritnefnd.

Eitt fagráð skal jafnan starfrækt í FNS. Það skal skipað tveimur fulltrúum félagsfólks af hverjum vettvangi náms- og starfsráðgjafa. Fagráð velur sér formann til eins árs í senn sem gegir jafnfram hlutverki tengiliððs við fulltrúa stjórnar. Tilgangur fagráðs er að vera stjórn félagsins til ráðgjafar um fagleg málefni og störf náms- og starfsráðgjafa á hvers kyns starfsvettvöngum. Einnig er hægt að leita til fagráðs varðandi umsagnir féalgsins um frumvörp, þingsályktanir og annað sem tengist stjórnsýslu og stefnumótun. Fagráð geur boðað til féalgsfundar um málefni fags og stéttar.

Norrænn fulltrúi FNS í norrænu samstarfi er eitt af embættum stjórnar. Hlutverk fulltrúa er að taka þátt í stjórn Norrænu samtaka náms-og starfsráðgjafa, (NFSY) fyrir hönd FNS og upplýsa um bæði starfsemina hér á landi og það sem gerist á norrænum vettvangi.

Uppstillinganefnd skal skipa fyrir aðalfund FNS. Í henni sitja þrír fulltrúar hið minnsta. Hún óskar eftir tilnefningum í trúnaðarstörf, nefndir og ráð félagsins. Félagsfólk getur boðið sig fram til slíkra starfa og fer kosning fram á aðalfundi ef með þarf.

Ekki er heimilt að sitja lengur í nefndum og fagráðum en 4 ár í senn. Hið sama gildir um fulltrúa í norrænu samstarfi. Nefndir og ráð skulu, í lok starfsárs, skila greinagerð til stjórnar FNS um starf nefnda/ráðs.

13. grein

Stjórnarfundir eru skipulagðir í smræmi við starfsáætlun hverju sinni. Breytingar á stjórnarfundum skal boða með tryggilegum hætti og með eins dags fyrirvara, ef unnt er. Stjórnarfundur er ályktunarfær, ef meirihluti stjórnarfólks sækir fund. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum. Við jöfn atkvæði ræður atkvæði formanns úrslitum. Gerðir stjórnarinnar skulu bókfærðar.

14. grein

Nú kemur fram tillaga um það, að félaginu skuli slitið og skal hún þá sæta sömu meðferð sem tillaga til lagabreytingar, sbr. 10.gr. Eignir félagsins, ef einhverjar eru, skulu þá renna til líknar- eða góðgerðarstarfsemi.