Gleðilegt sumar!

Á þessum síðasta vetrardegi óskum við félagsfólki og öllum þeim sem Félag náms- og starfsráðgjafa hefur átt í samstarfi og samvinnu við í vetur gleðilegs sumars.

Með síðasta vetrardegi fylgja ákveðin tímamót – við tökum fagnandi á móti fyrsta sumardeginum á morgun, eins og dagatalið forna segir til um og horfum einnig um öxl, hvað hefur áunnist og komist í framkvæmd.

Starf FNS hefur verið fjölbreytt í vetur þar sem tækifæri hafa gefist til að koma saman, ræða um fagið og vinna því brautargengi með hag ráðþega í fyrirrúmi.

Takk fyrir samveruna og gleðilegt sumar!